Bókaútgáfan Sæmundur - ný bók
Síðasta barnið
Síðasta barnið er heiti bókar Guðmundar
Brynjólfssonar og sjálfstætt framhald bókanna
Eitraða barnið og Þögla barnið sem báðar fengu
frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda.
Veturinn er harður og ofan á basl alþýðunnar
bætist morðbrenna á Stokkseyri og skotárás á
sýsluskrifstofunni á Eyrarbakka. Sem fyrr fléttast
hlutskipti fátækra Sunnlendinga inn í líf
sýslumannshjónanna sem þó eiga nóg með sitt.
.
Studdur af skrifara sínum Tryggva þarf
Eyjólfur að glíma við höfuðandstæðing
sinn, óþokkann Kár Ketilsson sem bruggar
sín viðbjóðslegu ráð. Embætti sýslumanns
berst óvæntur liðsauki frá Englandi og
ekki seinna vænna því nú dregur að
leikslokum.
Síðasta barnið er áttunda skáldsaga Guðmundar S. Brynjólfssonar sem auk þess er verðlaunað
leikskáld og þekktur pistlaskrifari.