Út er komin ljóðabókin Satína hin fagra
eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur.
Hræsnin mín
hvað væri ég án þín?
Dauð í niðurfalli,
rottunnar rotnandi hræ.
Ekki krosshangi:
hold hverfandi í svaðinu.
Vertu áfram hjá mér.
Satína hin fagra er fjórða ljóðabók
Steinunnar sem er tónlistarkona og skáld.