Ný bók frá Bókaútgáfunni Sæmundur!
Drengurinn sem dó úr leiðindum er
saga um nútímakrakka. Bestu
símarnir, skemmtilegustu
tölvuleikirnir og hangs á netinu er það
sem mestu máli skiptir í lífinu.
Heimur Kára Hrafns, venjulegasta tólf
ára stráks í heimi, hrynur þegar
foreldrar hans taka frá honum öll
snjalltæki og afhenda honum í staðinn
skærgulan farsíma sem hæfir bara
risaeðlum. Þá gerist það sem hlaut að
gerast:
Kári Hrafn hreinlega deyr úr
leiðindum!
Og hvað tekur þá við? Sagan fjallar
um vináttu, fjölskyldu og allt annað
milli himins og jarðar sem skiptir máli.
Guðríður Baldvinsdóttir er
sauðfjárbóndi og frumkvöðull í
Kelduhverfi. Hún hefur áður sent frá
sér barnabókina Sólskin með
vanillubragði.
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlega virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.